Rokkaðu pleisið í feisið!!
25.05.2005 22:29:27 / lenahronn

Well well....

Jæja var að koma af Víkinni af úrslitaleiknum í meistaradeildinni sem hefði ekki getað verið meira spennandi! auðvitað unnu kjellarnir og lýðurinn trylltist on the væk! En annars er skólinn finally búinn og ég náði öllu... THANK GOD!! en skráði mig svo í tvo áfanga í sumarskóla í dag sem ég er mjög stolt af sjálfri mér að nenna!! það var nú ekki haldið neitt sérstaklega upp á skólalokin, bara venjulegt fyllerí.... en ég verð bara að hrósa einum manni sem mun vera Kristján Rúnar Hauksson sem er algjörlega að trylla lýðinn og rífa upp skemmtanabransann á Höfn. Ég vil þakka fyrir frábært ball með þeim félögunum í hljómsveitinni sem ég veit ekki hvað heitir og svo fyrir nokkuð gott ball um hvítasunnuhelgina.

 Annars skruppum við á Egilsstaði um þessa helgi, lagt af stað á laugardeginum eftir vinnu, ég fór nú með Magga og fórum við á Wolksvagen Polo sem amma hans á. Það vildi nú ekki betur til en við brunuðum yfir Öxi en þegar við áttum svona 100 metra eftir mættum við einhverjum risabíl með fellihýsi og Maggi gleymdi að hann væri ekki á sjálfskiptum bíl og drap óvart á bílnum. Allt í góðu með það, ef helvítis druslan hefði farið í gang aftur! ég var farin að sjá fram á kalda nótt í þessum bjánalega bíl og ekkert símasamband!! æjjj.... þarna sátum við í svona 10 mín og Maggi reyndi að starta bílnum aftur og aftur og aftur en ekkert gerðist...... en svo rauk kerran í gang annað gerðist nú ekki á leiðinni.

Strákarnir spiluðu leik við Þristinn, sem fór 3-3 en þeir áttu nú að vinna enda miklu betri kjellarnir. Og haldiði ekki bara að Jobbi kallinn hafi ekki skorað, og var nú ekkert lítið ánægður með það!

Eftir leikinn var það bara bústaður, eurovision (sem fór ekki eins og það átti að fara), bjór og svo ball sem var nú ekkert spes.... fórum nú bara frekar snemma að sofa því stemmningin var frekar súr. Vaknaði svo um nóttina þegar Axel Bragi ætlaði að stela sænginni minni en það tók ég náttúrulega ekki í mál!! og þar að auki stal hann líka rúminu mínu! en annars vaknaði ég nú ekki aftur fyrr en um hálf ellefu þegar mamma hringdi í mig og sagði að Gunnar væri búinn að velta bílnum og lægi inn á sjúkrahúsi....WHAT!! auðvitað hélt ég að hún móðir mín væri að grínast (eða svona í 5 sek) þangað til hún öskraði LENA HRÖNN!!! HVAÐ ER AÐ ÞÉR!!! jæja trúði henni þá og varð alveg brjáluð af stressi og einhverju kvíðakasti um að Gunnar væri stórslasaður og reyndi að finna einhvern sem var á bíl.... en NEhei!! klukkan hálf ellefu höfðu allir yfirgefið bústaðinn nema bíllinn hans Inga, ég ´fékk han nú ek´ki lánaðann þar sem Ingi var ekki viðræðuhæfur...... en Karítas skutlaði mér og fór til kjellsins sem var hálf vankaður og allur í blóði.. að þessar hjúkkugærur hafi nú ekki getað þvegið það mesta af manninum.... en við vorum þá föst þarna en Maggi var svo góður að snúa við á Reyðarfirði og ná í mig Gauja og Jobba og taka okkur með heim. Þrátt fyrir rasssæri og þrengsli vil ég margþakka Magga fyrir góðmennskuna.

Nú er það bara vinnan sem er númer 1 2 og 3. En eitt enn, skellti mér á æfingu með Sindrastelpum í gær sem ég hef bara ekki gert í nokkra mánuði og líkaði bara ágætlega. Formið var nú ekki alveg upp á sitt besta en ég kom samt sjálfri mér nokkuð á óvart :D

En segi þetta gott í bili..... ble


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2005 08:29:18 / lenahronn

Loksins....

.... já loksins lét ég mig hafa það að skrifa á þessa blessuðu síðu :lol: Að vísu man ég ekkert hvað er búið að gerast síðan ég skrifaði síðast en það skiptir ekki öllu...

Páskarnir voru náttúrulega alveg vangefnir, við vorum full ALLAN tímann, partý á "höfðingjanum" öll kvöld og bara brjálað djamm :D en ég átti líka afmæli 14 mars og varð þá 18 ára. Jobbi missti svo bílprófið á afmælisdaginn GREAT..... þannig að ég er bara orðin leigubílstjóri sem fær ekkert borgað :cry: skólinn var bara búinn á föstudaginn!! þannig að það eru bara próf eftir sem er lovely.... er bara að vinna í Papós og er líka í sauðburðinum sem er bara stuð..:lol:

Hef nú náttúrulega bara ekkert að segja þannig að ble...


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2005 13:17:56 / lenahronn

Miðvikudagur...

Já þá er þessi helgi búin og bara kominn miðvikudagur... mér finnst vikurnar líða svo hratt váá.. já árshátíðin var um helgina og tókst held ég bara þokkalega til. Það voru 70 á matnum og ég veit ekki hvað voru margir á ballinu.. :haha: en hljómsveitin var helvíti góð og ég held að flestum hafi fundist það... en ég var svo ógeðslega þreytt klukkan hálf 4 að við fórum bara heim og svo var jobbi líka að fara að vinna kl 8.. en það héldu margir áfram að djamma held ég..

En btw styttist í að ég eigi afmæli ;) vúhú... ekki nema mánuður.. farið að drífa ykkur að kaupa afmælisgjafir :D svo styttist nú í miður skemmtilegan hlut líka.. það er nú það að jobbi er að fara að missa bílprófið.. gaman ég fæ að skutla honum út um allt..

En annars hef ég nú voðalega lítið að segja í bili....


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.02.2005 11:03:37 / lenahronn

Árshátíð í kvöld!!!

Jamm... vaknaði klukkan 8 í morgun til að keyra Jobba í vinnuna.. var alveg eldfersk!! fór EKKI aftur að sofa ... fór svo í sturtu og uppí Sindrabæ klukkan 10.. leitaði út um allt að Ella og fann hann svo kúrandi uppi í rúmi hjá Villa.. hann átti nefnilega að fara í jarðarför hjá ömmu sinni á Djúpavogi kl 2 í dag.. í fyrsta lagi var engin leið að vekja manninn og loksins þegar ég náði að vekja hann þá mumlaði hann bara eitthvað bull og sagðist ekki ætla að koma með... já ég er nú að fara að leggja af stað í þessa blessuðu jarðarför..

En árshátíðin er í kvöld .. langþráð kvöld sem allir eru búnir að bíða eftir. Er einmitt í skemmtinefndinni og erum búin að vera á fullu alla vikuna að semja og svoleiðis.. vonandi verður alveg svakalegt stuð!!!..... get ekki beðið!!

En sjáumst þá í kvöld á árshátíð FASista!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2005 22:34:03 / lenahronn

Well,well, well......

....jebbsídó... uuu hvað ætli það sé langt síðan ég bloggaði síðast?! uu skiptir ekki máli.. það er bara allt gott að frétta af mér og mínum! Það er samt ekki gaman núna því ég er ein heima og ligg og horfi á sjónvarpið og kúri með sængina mína..:cry::cry: jááá.. hann Jobbi er að vinna í bræðslunni og vinnur alltaf frá 8-8 nú er hann á næturvakt sem er öööömurlegt...en Steinunn var nú samt að hringja í mig og erum við að pæla í að fara út.. kannski kíkjum við á ball ef maður getur skrapað saman 2þús kalli til að fara á Stuðbandalagið hvað sem það nú er! Dóra er víst að vinna á barnum þannig að maður hugsar sér gott til glóðarinnar... nei djók....

Annars hef ég nú voðalega lítið að segja... jólin voru hin ágætustu en áramótin voru nú ekki þau allra bestu í mínum minnum.. en þó ágæt! Skólinn byrjaður aftur og ég með 98% mætingu hver myndi trúa því (2% missti ég þegar ég fór til tannlæknis því auðvitað pantaði ég tíma til tannlæknis þegar ég átti að vera í ensku ;);) uuu... byrjaði í ansi áhugaverðu fagi núna sem mun vera Heimspeki 103 sem sjálfur heimspekingurinn Róbert kennir... hitti hann einmitt á Kaffihorninu í gær og ræddum við saman á heimspekilegu nótunum :/ What ever......

Maður er líka byrjaður í ræktinni og er með harðsperrur í dag... ætla ekki að falla einu sinni enn í íþróttum! en ekki hef ég nú á stefnuskránni að fara að mæta á fótboltaæfingar aftur.. finn mig bara engan veginn knúna til þess.. því miður! 

En nenni þessu ekki lengur.. er farin út.... bleeee


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.11.2004 15:23:57 / lenahronn

Jæja..

Loksins nenni ég að skrifa hérna.. aðeins of löt. En allavegna þá vildi ég bara koma á framfæri að í fyrradag undirritaði ég sem formaður nemendafélags FAS undir samning við Parket um að þeir muni spila í Sindrabæ á annan í jólum. Kristján Rúnar Hauksson skrifaði undir þennan samning með mér og vil ég þakka þeim fyrir einstakar samningaviðræður og góðan samning :D Allir í Sindrabæ á annan í jólum!!!

Svo er annað.. krakkar í árgangi "87!! hvar verður nú þetta blessaða bekkjarpartý??? allir sem lesa þetta úr árgangnum viljiði gjöra svo vel að koma með comment og við reynum að leysa þetta sem fyrst því ekki ætla ég að sitja heima og mygla í sófanum og bíða eftir að ballið byrji!! Nei við leysum þetta mál... og hana nú.. ég veit alveg að foreldrar ykkar hefðu einskæra ánægju af því að fá þennan árgang í heimsókn enda með eindæmum skemmtilegur.....:Srg .. svo nú er bara að setja í gírinn og þrýsta á ykkar elskulegu foreldra.. ég þurfti ekki svo mikið að múta foreldrum mínum síðast...:lol:

Í næstu viku er svo kaffihúsakvöld sem ég vil endilega að allir mæti á.. það verða kökur, kaffi, kakó, kjééélingar, skemmtiatriði, keikir og Gunnar bróðir mun koma skemmtilega á óvart eins og honum einum er lagið ;) ALLIR AÐ MÆTA!!!

Annars hef ég nú ekki mikið fleira að segja svo að bara see you... jafnaldrar verið duglegir að commenta !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2004 16:20:40 / lenahronn

Sunnudagur..

Það er kominn sunnudagur og enn ein helgin á enda. En ég á nú eftir að segja frá síðustu helgi sem var nokkuð mögnuð. Föstudagurinn var samt ekkert spes.. fórum heim til Brynjars við stelpurnar.. það var bara ágætt, nokkrir bjórar og kellingamálin rædd ;) En á laugardeginum var nú planað að fara  upp í Lón í bústaðinn hennar Lóu að halda kveðjupartý fyrir Guðnýju af því að hún er að fara til Bandaríkjanna sem au pair.Við ætluðum að leggja af stað svona 3-4 en fórum ekki fyrr en 7.. það var svaka stuð!! Singstar, trúnó og dansað af krafti!! Singstarið var alveg milljón.. hvern hafði órað fyrir því að við værum svona góðir söngvarar.. :D en svo komu Finnur, Jobbi og Villi.. og svo fórum við niður á Höfn... þar var nú ekkert mjög gaman svo við fórum nú bara fljótlega heim eftir partý á Hvamminum þar sem allt varð víst vitlaust og smá hjá Gunnari Frey.

Annars er vikan nú bara búin að vera helvíti fljót að líða og það kom bara strax aftur helgi, frekar róleg helgi samt, fórum á Kaffihornið á föstud. nokkrir bjórar hjá sumum en fleiri hjá öðrum.. svo var rúntað alveg til 1 eða eikkað svoleiðis á laugardeginum, kíktum þá á Kaffihornið og svo fóru einhverjir á alveg hreint magnað ball.. en ég og Gauji tókum bara beygjur á meðan sem var nú ekki slæmt.. svo þegar ballið var búið var farið heim til Danna í massíft partý ... nei og við fórum bara heim.. í dag ætla ég að liggja undir sæng og horfa á sjónvarpið á meðan Jobbi er að vinna fyrir rassgatinu á mér... nei bara grín.. farin að kúra..:!:


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.10.2004 11:03:55 / lenahronn

Æluuupest

Halló! Það er ekki allt gott að frétta hér, eins og kannski fyrirsögnin gefur til kynna! Já ég var veik á mánud,þriðjud og miðvikud. og er ennþá frekar slöpp í dag en mætti þó í skólann. Það eru allir búnir að fá þessa skemmtilegu veiki hér en Jobbi liggur núna í rúminu..:(

Annars er nú voðalega lítið að frétta, bara vinna, skóli, æla.. nei grín... svo höfum við verið að brasa í einhverju rollustússi upp á síðkastið. Slátra og smala og eikkað svona skemmtilegt...:D Er einmitt að fara í fjárhúsið eftir skóla að ómskoða lömb, ekki eins og þið vitið hvað það þýðir enda langar ykkur örugglega ekkert að vita það 8|

Æææ... ég hef nú eiginlega bara ekkert fleira að segja í bili... bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2004 21:57:13 / lenahronn

Sorry Jóna... :/

 Já maður hefur nú ekki verið mjög duglegur við að blogga upp á síðkastið! En allavegna þá er ég nú bara í þessum venjulega unaðslega skóla sem veitir mér alltaf jafn mikla unaðstilfinningu að mæta í uuu nei.... eini ljósi bletturinn við skólagöngu mína er Náttúrufræðin hjá henni Hjördísi sem er einmitt alltaf klukkan 8 á morgnana en er þó laaaaaangskemmtilegasta fagið... þótt að einkunnin á síðasta prófinu hafi ekki verið upp á marga fiska þá er þetta samt sem áður skást! Hjördís er líka bara kúllí mú... :haha:

Að öðru leyti hef ég verið að vinna í 11-11 sem er náttúrulega ómótstæðilegt þótt að ég segi sjálf frá og þá finnst mér sérstaklega gaman að vinna með fólki sem mætir ekki í vinnuna!!!! :^) já ég nefni engin nöfn....

En um helgina fórum við nemendaráðið upp í bústað til Beggu og skipulögðum veturinn gróflega, og ég held að hann verði bara ágætur þessi vetur eða það ætla ég allavegna að vona :lol: Við ætlum að reyna okkar besta til að hafa almenninlegt annan í jólum ball og ég vooona svo innilega að hinir krakkarnir hjálpi okkur að safna pening ;) svo verður líka fótboltamót um helgina eða þá næstu og vonandi sem fyrst og ég held að það verði fín þátttaka :D En eftir skipulagninguna á vetrinum skelltu sumir sér í pottinn og fengu sér ískaldan öllara.. nice... kannski að ég telji upp þá sem voru :/ Ég náttla, Gunnar, Elvar Bragi, Finnur, Begga og Sigga Bára. Svo komu Dóri og Steinunn.... og svo komu Jobbi og Birgir. En það var nú annað partý hinum megin við ánna ef ég má orða það svo... og við kíktum þangað áður en við fórum heim og ég held að þetta hafi verið leiðinlegasta partý sem ég hef farið í í 17 ár... já síðan ég fæddist! en hvað um það... hvað gerir maður þá annað en að hunskast heim!

Svo er ég nú náttúrulega að vera geðveik á í 1.lagi skólanum 2.lagi Auri enskukennaranum mínum 3.lagi Lánasjóði íslenskra námsmanna og í 4. og síðasta lagi skólanum.... of gaman þar....

En hef allavegna ekki mikið meira að segja í augnablikinu sem ég man eftir... vona að þetta sé nóg af fréttum fyrir þig Jóna mín... ;) Síjú....


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.09.2004 16:33:00 / lenahronn

Sælir

Jæja ætli ég verði ekki að verða að ósk minna fjarverandi vina sem eru þyrstir í fréttir af mér :P Jáá.. það er bara allt gott að frétta hér! Fór í bæinn um helgina með mömmu, Jobba og Gunnari. Það var mjög skemmtilegur akstur til Rvk þar sem mamma og Gunnar rifust svona u.þ.b. alla leiðina út af einhverjum millifæringum á peningum og símtali á heilsugæslustöðina + það að Gunnar vildi ráða allri tónlistinni og vildi helst hlusta á eitthvað Luis Armstrong eða eikað álíka!! En allavegna þetta bjargaðist að lokum.. og komumst heil á húfi alla leið.. þetta var fínasta ferð.. kíktum í heimsókn til Gauja á föstudagskvöldið, helvíti fínt. Á laugardeginum fórum við nú í tvö afmæli, áttræðisafmæli til langömmu og tvítugsafmæli hjá Hildi og Þórey á Ara í Ögri sem var alveg massíft stuð. Mikið drukkið og rosa gaman.... Annars er nú annað að segja að við erum nú bara ein heima þar sem tengdó skruppu til Sverige.. Jóna kannski áttu von á gestum ;) En allavegna helvíti nice.. þau fóru í gær og koma ekki aftur fyrr en á sunnudag eða mánudag.. Annars er ekkert fleira sem ég get sagt held ég.. síjú ;)

» 62 hafa sagt sína skoðun

05.09.2004 14:13:42 / lenahronn

God dag..

Hallóóó! já langt síðan maður hefur nennt að skrifa... enda ekkert búið að vera um að vera upp á síðkastið! Við erum búnar að spila við ÍA og já.. kannski ekkert of góður árangur þar á ferðinni en við töpuðum 8-0 hér heima og 7-0 úti. En í útileiknum vorum við bara 1-0 undir í hálfleik. Ég og Karítas tókum smá verslunarleiðangur í leiðinni í útileiknum og ég keypti mér föt.. bókakaupin fóru eitthvað forgörðum hihi.. :/ Það er nú búið að vera eitthvað djamm núna en ekki sterkur leikur þar! Bara svona rólegt chill og svona.. rúntur og chill hjá Birgi stundum. Svo náttúrulega þeir sem eru orðnir 18 fara á Kaffihornið :^):evil: maður verður að sætta sig við að vera smápíka aðeins lengur.. ;) En ég er nú sennilega að fara til Rvk um næstu helgi, í afmæli hjá henni langömmu minni.. kannski að maður kaupi sér eitthvað, það er ekki gott að segja :P En allavegna þá hef ég nákvæmlega ekkert að segja í bili.. bleble

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.08.2004 12:53:05 / lenahronn

Over...

Jæja þá er þessi langþráða verslunarmannahelgi búin. Við skelltum okkur á Akureyri eins og til stóð,ég, Jobbi, Emmi og Gaui. Við fórum á föstudaginn og ég keyrði eiginlega alla og Jobbi bara smá.. Við vorum komin á Akureyri um 6 og ætluðum þá að skella okkur í sund en fundum fyrst stæði á tjaldstæðinu sem var alveg gjörsamlega pakkað af útúrdrukknu og poppuðu liði! en allavega þá var okkur nú meinaður aðgangur í sund (eða strákunum það er að segja, ekki mér ég var auðvitað edrú ;)) en gæslumaðurinn gerðist svo góður að leyfa okkur að fara í sturtu af því við vorum búin að keyra svo langt og vorum þreytt og sveitt :S Eftir það var bara dottið í það og um kvöldið fórum við á ball í Sjallanum með Pöpunum sem var mjög fínt... strákarnir voru samt soldið sjúkir í að slást :^) :evil:

Við fórum í sund á hverjum degi (snemma á morgnana) og ég held bara að við höfum verið ferskasta liðið þarna á pleisinu.. :lol: Við fórum svo á ball með Í svörtum fötum og svo með Quarashi og 200 000 naglbítum.. þau voru bara svona ágæt ;) En svo áttum við nú alveg heilan stað útaf fyrir okkur, einhvern sportbar sem við héngum á ... og einhvernveginn þá villtumst við inn í búð sem heitir Adam og Eva og selur ýmisskonar hjálpartæki ástarlífsins.. :lol: en allavegna þá gátu sumir ekki stillt sig um að kaupa eitthvað þar og Valdi keypti klámmynd handa Villa og Villi keypti bláan gúmmí framlengingardela handa Valda.. þessi deli var ofnotaður alla helgina 8| sumir gerðu enn stærri kaup og Þór keypti sér uppblásna ríðudúkku á 8000 kall!!

Já ég held að ég hafi sjaldan hlegið svona mikið um eina helgi enda voru sumir aðeins að flippa ooof mikið nefnum engin nöfn en Oggi átti gott lag:

Er það minn eða þinn Lancerinn

er það minn eða þinn Lancerinn

já það er minn en ekki þinn

já það er minn en ekki þinn Lancerinn

Góður texti!

Aðrir voru lagðir illilega í einelti eins og t.d. Gaui (ég nefni engar ástæður) og voru aðal eineltisfulltrúarnir Jón Haukur og Oggi! kemur á óvart..... Eftir aðfarir gauja á sunnudagsmorguninn var ákveðið að blása til keppni um hver myndi koma heim með ljótustu stelpuna, þar sem Gaui yrði dómari! Villi tók þessa keppni síðan aðeins of alvarlega og lenti í einhverju tjaldi með einhverri stelpu...

Já endalaust skemmtileg helgi, það var frábært veður nærri allan tímann og lifað á bjór og óhollustu.. sumir voru líka að tala um að þeir hefðu malbikað á sér lungun þeir hefðu reykt svo mikið... veit ekki hvað er til í því :S:| en allavega takk fyrir helgina þeir sem voru með mér ;) :klikk::D


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.07.2004 11:58:27 / lenahronn

Verslunarmannahelgi!!!!

Eins og þið sjáið á niðurtalningunni og vitið örugglega sjálf þá er verslunarmannahelgin bara gengin í garð!! já það verður allt kreisí um helgina það er engin hætta á öðru... við leggjum af stað sem fyrst á morgun. Ætlum að verða í samfloti við Ogga, Villa, Valda og Begga. En ég veit nú ekki hvernig það á eftir að ganga þar sem það er grenjandi rigning og rúðuþurrkurnar hans Ogga virka ekki.. :$ En það kemur nú bara allt í ljós á morgun... Ég er búin að gera feitan lista yfir hvað ég þarf að gera svo að það verður nóg að gera í dag að taka sig til ;)

En á þriðjudaginn sótti Fjarðarbyggð okkur heim. Sindraskvísur ætluðu nú ekki að fara að spila aftur eins og gamlar kerlingar svo að við spíttum í lófana og möluðum þær 5-0. Þið getið lesið meira um það á www.sindraskvisur.blogspot.com ;):lol: Ég vil líka einnig benda á það að Jóna náði sínu hundraðasta marki og ég vil óska henni innilega til hamingju með það :D:D

Meira hef ég nú ekki að segja í bili... eigið allir góða verslunarmannahelgi ;);)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2004 11:06:37 / lenahronn

Mánudagur...

Já mánudagar eru aldeilis skemmtilegir dagar.. uu nei.. en það er nú voðalega lítið að frétta. Var bara að vinna frá 1-5 í gær.. nice ;) það var geðveikt veður, ég og Jobbi tókum bara rúnt og hann þreif bílinn og við fengum okkur ís :D svo í gærkvöldi höfðum við EKKERT að gera.. hundleiðinlegt á rúntinum og of gott veður til að taka spólu, þannig að við ákváðum bara að bruna út í sveit í heimsókn til Emma og Fúsa. Þeir voru í stuði að venju og við skruppum í fótbolta þar sem mikið var púlað.. svaka stuð :lol:

Og svo eru nú ekki nema 3 dagar í verslunarmannahelgi!! já ég get sko ekki beðið! ætli við förum ekki á mínum bíl, ég, Jobbi, Emmi og Gaui.. það verður klikkað stuð á Akureyri ég efast ekkert um það!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2004 09:26:55 / lenahronn

Vinna vinna vinna....

Ohh.. ég get ekki beðið eftir verslunarmannahelginni enda ekki nema 5 dagar í hana ;):lol: Já ég hef nú lítið að segja í þetta skipti. Það er búið að vera voðalega rólegt hjá mér, bara sofa til 4 og fara svo að vinna, er reyndar búin að vera að vinna soldið meira en ég á að gera vegna fráfalls í fjölskyldunni hjá bossinum.. hef ekki komist á æfingu í viku eða eikkað, get nú ekki sagt að ég sakni þess neitt afsakplega mikið :S En allavegna þá er leikur á þriðjudaginn held ég hér heima á móti Fjarðarbyggð held ég.. :S ekki alveg inni í þessu..

En annars þá hefur nú bara lítið gerst, það er bara búið að taka spólu og rúnta á kvöldin.. maður er orðinn svo stilltur eitthvað.. en hef ekki meira að segja í bili.. ble


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2